Í Borgarbyggð er gildandi aðalskipulag frá árinu 2010 og er í ferli endurskoðun aðalskipulags Borgarbyggðar (2025-2037). Í sveitarfélaginu eru í gildi deiliskipulög fyrir einstök svæði innan sveitarfélagsins en allt landið er skipulagsskylt skv. skipulagslögum (12. gr. laga nr. 123/2010). Ef breyta á gildandi skipulagi eða skilgreina ný er sótt um það til skipulagsfulltrúa og þær tillögur síðan auglýstar í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar og á heimasíðu Borgarbyggðar (skipulagsauglýsingar). Ekki er í gildi heildstætt skipulag fyrir frístundabyggðina í Munaðarnesi en deiliskipulag liggur fyrir hvert hverfi eða hluta hverfis. Hægt er að skoða það skipulag sem liggur fyrir á kortasjá Borgarbyggðar.
Hér er slóð á þá síðu : https://www.map.is/borgarbyggd