Eftirlit

Árlega semur stjórn sumarhúsafélagsins við eftirlitsaðila sem hefur með höndum öryggiseftirlit á svæðinu. Viðkomandi öryggisaðili kemur einu sinni í viku frá byrjun september til loka apríl
Hann hefur beint samband við eiganda viðkomandi sumarhúss ef eitthvað kemur í ljós í efirtlitsferð sem telst vera óvenjulegt, s.s. vegna vatnsleka, rafmagnsleysis, hugsanlegt innbrot eða annað
sjáanlegt tjón. Það er matsatriði eftirlitsaðila hverju sinni hvort nauðsynlegt er að fara að og ganga í kringum hvert hús í eftirlitsferð. Ef eftirlitsaðili verður var við innbrot í eitt eða fleiri hús á svæðunum skal hann einnig tilkynna það til stjórnar félagsins við fyrsta hentugleika . Félagið lætur eftirlitsaðila í té lykla að hliðlásum, aðgang að sjálfvirkum hliðslám ásamt
upplýsingariti með símanúmerum félagsmanna og uppdrátt af svæðinu.

Eftirlitsaðili á svæðinu er Brynjólfur Guðmundsson. Síminn hans er 8637398