Sorphirða
Sorpgámar fyrir frístundahús í landi Munaðarness eru staðsettir neðan við þjóðveg á plani við heimreiðina að bænum Munðarnesi. Þar er mótttaka á pappír, plasti og almennu sorpi. Grófur úrgangur, hreint og litað timbur, járn og málmar, spilliefni og steinefni eiga að fara á gámastöðina í Borgarnesi. Opnunartíma má sjá á mynd hér að neðan.
Alls ekki má skilja sorp eftir umhverfis gámana.
Umgengni lýsir innri manni.


