Snjómokstur

Á aðalfundi er ár hvert ákveðið hvort að leggja eigi í kostnað vegna snjómoksturs. Árið 2024-2025 var ákveðið að snjómokstur væri í þrjú skipti á vegum félagsins. Farið væri um alla sameiginlega vegi á svæðinu fyrir jól, á milli jóla og nýjaárs og fyrir páska ef þörf væri á. Snjómoksturinn er ákveðinn í samráði við framkvæmdanefndir á svæðunum. Stjórnin óskar eftir tilboðum í verkið til að fá sem hagstæðust verð. Upplýsingar um mokstur verða tilkynntar á fésbókarsíðunni. Ef félagsmenn óska sjálfir eftir mokstri á öðrum tímum hvetjum við þá til að ræða slíkt við nágranna sína á framkvæmdasvæðinu þannig að þeir geti tekið þátt sem sjá hag sinn í því á þeim tíma.